Fotbolti.net
28.10.26 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

Carrick og Bruno lægja öldurnar sín á milli

Carrick ræðir við Bruno.

Carrick ræðir við Bruno.

Canon

Mynd: EPA

BBC segir að Michael Carrick, stjóri Manchester United, og fyrirliðinn Bruno Fernandes hafi átt hreinskilnislegt samtal sín á milli til að lægja öldurnar.

Bruno var ónotaður varamaður í 3-0 tapi Manchester United gegn Bournemouth á sunnudaginn. Portúgalinn var bekkjaður eftir að hafa gagnrýnt leikskipulag Carrick opinberlega eftir 4-1 tap gegn Como í Meistaradeildinni.
Carrick stýrir Man Utd áfram og fær tækifæri til að snúa genginu við
TENGT EFNI

Carrick stýrir Man Utd áfram og fær tækifæri til að snúa genginu við

Samkvæmt BBC áttu þeir tveir einkasamtal á æfingasvæði félagsins í gær en ekki er vitað hvor þeirra átti frumkvæðið að samtalinu.

United undirbýr sig nú fyrir útileik gegn Chelsea sem fram fer á laugardaginn klukkan 12:30.

Búist var við því að Carrick yrði rekinn eftir leikinn gegn Bournemouth en hann fær meiri tíma til að rétta gengið við og mun stýra liðinu á Brúnni.

Fleiri góðar fréttir bárust Carrick í dag þegar miðjumaðurinn Kobbie Mainoo sneri aftur til æfinga eftir tveggja vikna fjarveru vegna meiðsla.
Carrick og Bruno lægja öldurnar sín á milli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.