Fotbolti.net
28.10.26 - 13:54
Elvar Geir Magnússon

Arsenal áfrýjar brottvísun Dowman

Dowman er á leið í þriggja leikja bann.

Dowman er á leið í þriggja leikja bann.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal hefur áfrýjað brottvísun Max Dowman í leik liðsins gegn Fleetwood í deildabikarnum í gær.

Þessi 16 ára leikmaður fékk að líta beint rautt spjald á 85. mínútu fyrir viðbrögð sín eftir groddaralega tæklingu. Hann var talinn hafa sparkað í Harrison Neal, leikmann Fleetwood. Hann sparkaði ekki af fullum krafti en fótur hans kom við Neal.

„Þetta er ekki eiginlegt spark; hnéð á honum er í raun nú þegar í snertingu við hinn leikmanninn, þetta er meira eins og snögg hreyfing. Þetta er greinilega pirringur hjá Max Dowman eftir erfitt kvöld. Mér fannst rauða spjaldið strangt," segir Jobi McAnuff, sérfræðingur Sky Sports.

Eins og staðan er núna bíður Dowman þriggja leikja bann en Arsenal er þunnskipað í kantstöðunum. Liðið tapaði í vítakeppni gegn Fleetwood en leikur gegn Liverpool á Anfield á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni.
Gagnrýnir viðbrögð Arteta eftir rauða spjald táningsins
TENGT EFNI

Gagnrýnir viðbrögð Arteta eftir rauða spjald táningsins



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.