Fotbolti.net
28.10.26 - 14:33
Kári Snorrason

Sancho hafnar Getafe

Lék á láni með Aston Villa á síðasta tímabili.

Lék á láni með Aston Villa á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Jadon Sancho mun ekki fara til Getafe. Hann hafnaði samningstilboði félagsins þar sem honum þótti launin of lág.

Þessi 26 ára gamli enski vængmaður er án félags eftir að hann yfirgaf Man Utd í sumar þegar samningur hans við félagið rann út.
Sancho fær gríðarlega launalækkun
TENGT EFNI

Sancho fær gríðarlega launalækkun

Sancho er góðu vanur en vikulaun hans hjá United voru um 250 þúsund pund.

Óvíst er hvað tilboð Getafe hljóðaði upp á mikið. Telegraph sagði frá því að félagið hafi boðið honum 10 þúsund pund í vikulaun en Marca segir að Getafe hafi mest boðið Sancho tæp 50 þúsund pund á viku.

Óvíst er hvað tekur við hjá Sancho en félög í Sádí-Arabíu hafa áhuga á honum sem og West Ham sem leikur í Championship deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.