Fotbolti.net
28.10.26 - 15:28
Elvar Geir Magnússon

U15 sigraði heimamenn í vítakeppni

U15 sigraði heimamenn í vítakeppni
Canon

Mynd: KSÍ

U15 karla gerði 3-3 jafntefli við Austurríki í fyrsta leik liðsins á þróunarmóti UEFA sem fram fer í Austurríki.

Guðmundur Brynjar Wehmeier úr Val, Þórður Páll Sölvason úr ÍA og Novak Tufegdzic sem er hjá Malmö skoruðu mörk Íslands í leiknum.

Ef leikir enda með jafntefli eftir venjulegan leiktíma á mótinu er farið í vítaspyrnukeppni og vann Ísland hana að þessu sinni.
Hópur U15 fyrir þróunarmót: Fjórðungur úr FH
TENGT EFNI

Hópur U15 fyrir þróunarmót: Fjórðungur úr FH

Ísland mætir næst Spáni á föstudag kl. 13:00 og verður sá leikur í beinni útsendingu á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans. Einnig mun liðið mæta Grikklandi.

Heimild: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.