Fotbolti.net
28.10.26 - 18:00
Brynjar Ingi Erluson

Lindelöf áfram hjá Aston Villa

Lindelöf í leik með Villa

Lindelöf í leik með Villa

Canon

Mynd: EPA

Sænski varnarmaðurinn Victor Lindelöf verður áfram hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, en frá þessu greinir sænski miðillinn Expressen.
Lindelöf er 32 ára gamall og hefur leikið með Villa síðasta árið eftir að hafa komið til félagsins frá Manchester United.

Hann skrifaði undir tveggja ára samning við komuna, en stjórnarmenn Villa eru afar ánægðir með frammistöðu hans. Svíinn hefur reynst liðinu afar vel með fjölhæfni sinni og leyst nokkrar stöður með góðum árangri. Hann var jafnframt í liðinu sem vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð.

Expressen greinir nú frá því að Lindelöf hafi framlengt samning sinn um eitt ár til viðbótar og verði því hjá félaginu til ársins 2028.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Villa-menn sem hafa heldur betur rétt úr kútnum eftir slaka byrjun á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.