Fotbolti.net
28.10.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víðir Freyr á blaði Aftureldingar

Víðir Freyr á blaði Aftureldingar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víðir Freyr Ívarsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á blaði hjá Aftureldingu og mun í næstu æfingu æfa með liðinu.

Víðir er með lausan samning eftir að hafa spilað með ÍR undanfarin tvö tímabil. Hann er uppalinn hjá Hetti og lék einnig í yngri flokkum Breiðabliks, Fjölnis og HK.

Faðir hans er fyrrum landsliðs- og atvinnumaðurinn Ívar Ingimarsson.

Í meistaraflokki hefur hann spilað með Hetti/Hugin og ÍR ásamt því að hafa spilað undirbúningsleiki með HK og Fram.
Víðir Freyr er sóknarmaður sem fæddur er árið 2004 og skoraði hann fimm mörk í Lengjudeildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.