Fotbolti.net
28.10.26 - 12:31
Kári Snorrason

Sigurður Arnar yfirgefur ÍBV og flytur í bæinn

Yfirgefur Eyjamen.

Yfirgefur Eyjamen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Arnar Magnússon hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net yfirgefið ÍBV en hann er að flytja á höfuðborgarsvæðið.

Samningur þessa 27 ára gamla varnarmanns við ÍBV rennur út um miðjan næsta mánuð.

Sigurður hefur einungis spilað í Vestmannaeyjum hérlendis en hann lék einnig með Ohio State í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Sigurður hefur verið orðaður við Val og hefur Hlíðarendafélagið samkvæmt heimildum sett sig í samband við varnarmanninn.

ÍBV féll úr Bestu deildinni á nýloknu tímabili og gætu fleiri leikmenn verið á förum frá félaginu. Bjarki Björn Gunnarsson gæti yfirgefið Eyjamenn og þá er Milan Tomic einnig að renna út á samningi.
Halldór Árnason er tekinn við sem nýr þjálfari Vals.

Halldór Árnason er tekinn við sem nýr þjálfari Vals.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.