28.10.26 - 15:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sarah kveður Völsung (Staðfest)

Mynd: Völsungur

Mynd: Völsungur

Sarah Elnicky hefur kvatt Völsung eftir að hafa verið hjá félaginu undanfarin ár. Hún kom fyrst til Húsavíkur 2021 sem leikmaður og yngri flokka þjálfari.
Hún sneri aftur í Völsung 2024 og var þá aðstoðarþjálfari kvennaliðsins. Síðustu tvö sumur hefur hún verið aðalþjálfari kvennaliðsins og sumarið 2025 fór liðið upp úr 2. deild. Meðfram aðalþjálfarastarfinu kom hún að yngri flokka þjálfun.
Völsungur lék í Lengjudeildinni í sumar, lék eftirtektarverðan fótbolta en náði ekki að halda sæti sínu í deildinni.
Sarah, sem kom fyrst til Íslands 2011 og lék þá með Haukum, er bandarísk og hafði svo spilað í Svíþóð og Noregi fyrir komuna á Húsavík. Hún heldur nú á ný mið. Húsvíkingar þakka henni fyrir hennar góða starf á samfélagsmiðlum.

Sem stendur er Völsungur án þjálfara í meistaraflokkum karla og kvenna.