28.10.26 - 18:23
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona ætlar að reyna aftur við Bergvall

Lucas Bergvall

Mynd: EPA

Lucas Bergvall

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona ætla að freista þess að fá sænska miðjumanninn Lucas Bergvall til félagsins, en hann er á mála hjá Tottenham á Englandi.
Svíinn framlengdi samning sinn við Tottenham í síðasta mánuði til fimm ára, en það hefur ekki fælt Börsunga frá. Þeir hafa lengi haft augastað á Bergvall og kepptu meðal annars við Tottenham um að fá hann til sín frá Djurgården fyrir tveimur árum.
Bergvall hefur ekki fengið stórt hlutverk undir stjórn Roberto De Zerbi og aðeins leikið 144 mínútur í ensku úrvalsdeildinni það sem af er tímabili.
Í sumar tilkynnti hann Tottenham að hann væri að leita að nýrri áskorun og reyndu bæði Newcastle United og Nottingham Forest að fá hann til sín, en Tottenham hafnaði öllum tilboðum.
Félagið gæti þó verið tilbúið að skoða tilboð þegar félagaskiptaglugginn opnar á ný í janúar, en Barcelona er sagt standa best að vígi í baráttunni um Svíann.
Napoli og Inter eru einnig sögð hafa mikinn áhuga á Bergvall.
Ef Bergvall fær að yfirgefa Tottenham kemur ekki til greina að lána hann til annars félags, heldur yrði hann aðeins seldur.