28.10.26 - 13:40
Elvar Geir Magnússon
Öllum bikarleikjum dagsins á Spáni frestað eftir lestarslys

Real Madrid var með mínútu þögn fyrir æfingu eftir lestarslys sem varð á Spáni fyrir níu mánuðum.

Mynd: EPA

Öllum 24 leikjunum í spænska konungsbikarnum (Copa del Rey) sem áttu að fara fram í kvöld hefur verið frestað. Það er gert til að sýna virðingu eftir hræðilegt lestarslys sem varð nálægt Madríd.
Yfir 500 farþegar voru um borð í hraðlestum sem rákust saman og fóru út af sporinu í Toledo. Meira en 30 manns létust. Þetta er annað mannskæða lestarslysið á Spáni á þessu ári.

Fimm lið úr efstu deild; Levante, Alaves, Valencia, Celta Vigo og Real Betis, áttu að leika í fyrstu umferð keppninnar í kvöld.
Stórlið á borð við Real Madrid, Barcelona og Atletico Madrid koma ekki inn í keppnina fyrr en í 32-liða úrslitum.
Leikir fimmtudagsins fara fram samkvæmt áætlun en spænska fótboltasambandið hefur ekki enn gefið út nýja leikdaga fyrir leikina sem frestað var.