28.10.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho útskýrði taktíkina gegn Barca: Eina lausnin

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA
José Mourinho var kampakátur eftir gríðarlega mikilvægan sigur Real Madrid gegn Barcelona í El Clásico slagnum á Nývangi um helgina.

TENGT EFNI
Mourinho: VAR dómararnir sofnuðu
Börsungar hafa verið gríðarlega öflugir á upphafi tímabils og eru búnir að raða inn mörkunum. Þeir voru búnir að vinna alla leiki í öllum keppnum þar til þeir töpuðu gegn PSG í Meistaradeildinni í miðri viku og töpuðu svo á heimavelli gegn Real.
Liðið spilar með gríðarlega háa varnarlínu og nýttu leikmenn Real sér það til að komast í gegn.
„Ég sagði við Camavinga og Bellingham að ráðast á auðu svæðin. Það er erfitt fyrir sóknarleikmenn að sækja í auð svæði út af rangstöðugildru Barca svo eina lausnin er að gera það með miðjumönnunum," útskýrði Mourinho.
„Þegar sóknarmenn reyna að hlaupa í auðu svæðin eru varnarmenn Barca tilbúnir að spila þá rangstæða og Joan García (markvörður Barca) er kominn langt út til að ná boltanum. Þess vegna er lausnin að nota miðjumenn eins og Camavinga og Bellingham til að koma þeim í vandræði. Það virkaði í dag."
Andriy Lunin varði mark Real í fjarveru Thibaut Courtois og stóð sig mjög vel. Mourinho hrósaði honum sérstaklega að leikslokum.
„Ég hef ekki ennþá fengið spurningu um Lunin en hann var stórkostlegur í þessum leik. Ég er viss um að þið hefðuð spurt út í hann ef við hefðum tapað.
„Þetta er mikilvægur sigur en við megum ekki týna okkur á tunglinu, við verðum að vera með fæturna á jörðinni og halda áfram að leggja mikla vinnu á okkur. Tímabilið er langt."

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 10 | +29 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 10 | +15 | 24 |
| 4 | Betis | 10 | +2 | 20 |
| 5 | Real Sociedad | 10 | +1 | 19 |
| 6 | Sevilla | 10 | 0 | 17 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Athletic | 9 | +3 | 12 |
| 9 | Celta | 10 | +3 | 12 |
| 10 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 11 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 12 | Osasuna | 10 | -10 | 11 |
| 13 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 14 | Levante | 10 | -3 | 10 |
| 15 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 16 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 17 | Getafe | 10 | -10 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |