28.11.06 - 06:34
Emiliano Insua til Liverpool (Staðfest)

Rafael Benítez hefur keypt marga unga og efnilega leikmenn á undanförnum mánuðum.

Mynd: Getty Images

Rafael Benítez hefur keypt marga unga og efnilega leikmenn á undanförnum mánuðum.

Mynd: Getty Images
Liverpool hafa gengið frá kaupunum á 17 ára gömlum Argentínskum leikmanni frá Boca Juniors. Sá heitir Emiliano Insua og er varnarmaður en hann á reyndar enn eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi sem er ólíklegt að verði vandamál fyrir strákinn.
Hjá Liverpool hittir hann fyrir vin sinn Gabriel Paletta en báðir eru þeir í landsliði Argentínu fyrir leikmenn 20 ára og yngri. Paletta kom til Liverpool frá Banfield síðasta sumar.
Talið er líklegt að kaupverðið á Insua sé um ein milljón punda en lið á borð við Barcelona, Real Madrid, Chelsea og Manchester United höfðu öll verið að fylgjast með leikmanninum unga.
Talið er líklegt að kaupverðið á Insua sé um ein milljón punda en lið á borð við Barcelona, Real Madrid, Chelsea og Manchester United höfðu öll verið að fylgjast með leikmanninum unga.
Heimild: BBC | Liverpool Echo
