28.11.07 - 11:57
Magnús Valur Böðvarsson
Mcleish orðinn stjóri hjá Birmingham (Staðfest)

Alex McLeish er nýr stjóri hjá Birmingham

Mynd: Getty Images

Stjórn Birmingham tilkynnti fyrr í dag að Alex McLeish hafi verið ráðinn stjóri hjá Birmingham en hann sagði upp sem landsliðsþjálfari Skotlands nýverið þar sem hann náði góðum árangri og var aðeins hársbreidd frá því að tryggja liðinu á EM.
McLeish sem er fyrrum stjóri hjá Rangers og Hibernian tekur við starfinu af Steve Bruce sem yfirgaf liðið til að geta tekið við hjá Wigan.
McLeish skrifaði undir þriggja og hálfsárs samning. McLeish hefur þegar fundið sér aðstoðarmenn en það eru þeir sömu og voru aðstoðarmenn hans hjá Skotlandi þeir Roy Aitken og Andy Watson.
McLeish sagðist hafa notið tímans sem landsliðsþjálfari Skotlands og íhugað að halda áfram en þar sem hann vissi af áhuga liða í ensku úrvalsdeildinni tók hann þá ákvörðun að hætta en það hefur lengi verið draumur hans að stjórna liði í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: Skysports