Arturo Vidal, miðjumaður Inter á Ítalíu, lenti í því leiðindaratviki á dögunum að brotist var inn til hans á meðan hann var að spila leik gegn AC Milan.
Nágrannaslagurinn fór fram þann 7. nóvember síðastliðinn og endaði 1-1. Vidal kom inn á sem varamaður í leiknum.
Á meðan leiknum stóð þá var stolið Mercedes bifreið sem er metin á 400 þúsund evrur. Þá stálu mennirnir einnig skartgripum og fleiri hlutum af heimili Vidal.
Vidal býr í Villaggio del Sole á Como svæðinu á Ítalíu.
Það er orðið mjög algengt að brotist er inn hjá ríkum fótboltamönnum en á dögunum birti Reece James, leikmaður Chelsea, myndband af þjófum vera brjóta sér inn á heimili hans.
Þar stálur þeir á m.a. gullmedalíu hans frá sigrinum í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð.
Athugasemdir