Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 28. nóvember 2021 18:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea jafnaði úr víti - „Hvað var hann að hugsa?"
Jorginho skoraði af vítapunktinum.
Jorginho skoraði af vítapunktinum.
Mynd: EPA
Staðan er orðin jöfn á Stamford Bridge þar sem Manchester United og Chelsea eigast við í stórleik helgarinnar.

Man Utd komst yfir með marki frá kantmanninum Jadon Sancho eftir slæm mistök frá Jorginho.

Chelsea hefur verið sterkari aðilinn í leiknum og þegar rúmar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fengu þeir vítaspyrnu þegar Aaron Wan-Bissaka sparkaði í hælinn á Thiago Silva eftir fast leikatriði.

„Þetta er glæfralegt. Hvað er hann að hugsa?" sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, þegar hann sá atvikið aftur. Hann var ekki hrifinn af tilburðum Wan-Bissaka.

Jorginho var svalur á vítapunktinum og skoraði. Spyrnan var allavega svalari en snerting hans sem kostaði Chelsea mark fyrr í leiknum. Hægt er að sjá vítaspyrnuna og dóminn með því að smella hérna.
Athugasemdir
banner