28.12.06 - 13:18
Hafliði Breiðfjörð
Granqvist til Wigan á láni (Staðfest)

Leikmenn Wigan fá nýjan liðsfélaga.

Mynd: Getty Images

Leikmenn Wigan fá nýjan liðsfélaga.

Mynd: Getty Images
Sænski varnarmaðurinn Andreas Granqvist er genginn í raðir Wigan frá Helsingborg á láni út tímabilið. Að þeim tíma liðnum mun Wigan geta keypt hann frá sænska félaginu en Granqvist er 21 árs gamall og gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Wigan gegn Blackburn á nýársdag.
,,Að spila á Englandi hefur alltaf verið draumur fyrir mig. Ég er hæstánægður með að hafa gengið frá þessum skiptum," sagði Granqvist í dag. ,,Mér líkaði vel við að vinna með stjóranum á æfingum og ég sé að það er þegar frábær hópur hérna."
Hann verður annar sænski leikmaðurinn í leikmannahópi Wigan en fyrir var Andreas Johansson hjá félaginu. Granqvist á að baki einn landsleik fyrir Svíþjóð og hluti af samningi hans við Wigan felur í sér að hann taki ekki þátt í nokkrum æfingaleikjum Svía gegn Suður Amerískum liðum í janúar.
,,Ég vona að ég geti endurgoldið trustið sem Wigan hafa sýnt mér með því að standa mig vel fyrir félagi. Ég hef talað við Andreas um félagið og hann sagði mér frá liðsandanum og hvernig hann telur að Wigan muni henta mér."
,,Ég veit að það eru nokkrir mjög góðir varnarmenn hjá félaginu og ég mun þurfa að berjast fyrir sæti mínu, en það er í lagi. Ég gat ekki hafnað tækifæri til að spila á Englandi og reyna að prófa mig gegn sumum af bestu leikmönnum heims."

Heimild: BBC