28.12.06 - 16:22
Hafliði Breiðfjörð
Alexander Kerzhakov til Sevilla (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Alexander Kerzhakov framherji Zenit St Petersburg gekk í dag til liðs við Sevilla á Spáni og gerði fimm og hálfs árs samning við félagið en rússneska félagið greindi frá þessu og bætti við að þeir hafi gert langtíma samstarsfsamning við Sevilla sem er 15 milljón evra virði.
,,Ég held að þetta sé einn af stærstu samningum í sögu rússneskrar knattsprynu," sagði Konstantin Sarsania íþróttastjóri Zenit í dag. ,,Hann inniheldur ýmislegt í viðskiptaheimi fótboltans. Félagaskipti Kerzhakov eru bara hluti þess."
Talið er að kaupverðið á leikmanninum sé 5 milljónir evra en Kerzhakov var markahæsti leikmaður rússnesku deildarinnar fyrir tveimur árum. Ljóst var að hann færi eftir að Dick Advocaat tók við liðinu í júlí.
Aðal styrktaraðili Zenit er olíurisinn Gazprom en liðið hefur keypt argentíska framherjann Alejandro Dominguez og rússneska framherjann Pavel Pogrebnyak í desember og gert þriggja ára samninga við báða.

Heimild: Reuters