29.01.06 - 17:32
Magnús Már Einarsson
Bjarni Ólafur til Silkeborg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Varnarmaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning hjá danska liðinu Silkeborg en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolti.net nú síðdegis.
Bjarni Ólafur fór til Silkeborg á reynslu á dögunum og sendi liðið í kjölfar tilboð til Valsmanna. Því var tekið um miðja síðustu viku og nú fyrir helgi gekk Bjarni frá samningum við liðið.
Þessi knái vinstri bakvörður sem lék sinn fyrsta A-landsleik á síðasta ári fór meðal annars til norsku liðanna Odd Grenland og Valerenga í haust sem og Midtjylland en hann fór að lokum til Silkeborg.
Bjarni mun halda utan á morgun og hefja æfingar með Silkeborg sem er í níunda sæti af tólf liðum í dönsku deildinni en þar er nú vetrarfrí þar til í byrjun mars.