Fotbolti.net
29.01.07 - 14:51
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Stern John til Sunderland (Staðfest)

Stern John er kominn til Sunderland

Stern John er kominn til Sunderland

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Stern John hefur gengið til liðs við Sunderland frá Coventry City fyrir óuppgefna upphæð og skrifaði hann undir tveggja og hálfs árs samning.
Hjá Sunderland mun John hitta fyrir Dwight Yorke, samherja sinn hjá Trinidad og Tobago. Hann varð sjötti leikmaðurinn til að koma til Roy Keane og félaga í þessum mánuði en hann stóðst læknisskoðun í dag.

,,Ég vil þakka Stern fyrir framlag hans undanfarin ár með Coventry City. Hann hefði orðið samningslaus hjá Coventry í sumar og honum fannst þetta var of gott tækifæri til að hafna," sagði Adrian Heath bráðabirgðastjóri Coventry á heimasíðu félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.