29.01.08 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Erik Nevland til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fulham hefur gengið frá kaupum á Erik Nevland frá hollenska liðinu FC Groningen.
Nevland sem var eitt sinn á mála hjá Manchester Untied skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Fulham eftir að hafa staðist læknisskoðun.
,,Ég er mjög ánægður með að bjóða Erik velkominn til Fulham," sagði Roy Hodgson stjóri Fulham en Nevland er norskur framherji.
,,Hann er leikmaður sem ég þekki og ég er viss um að hann getur nýst okkur og hjálpað okkur í framtíðinni."
,,Erik hefur spilað frábærlega og átti stóran þátt í því að halda FK Viking í norsku deildinni," sagði Hodgson.

Heimild: Sky