Fotbolti.net
29.01.08 - 12:28
Magnús Már Einarsson

Samaras og Mizuno til Celtic (Staðfest)

Georgios Samaras.

Georgios Samaras.

Canon

Mynd: Getty Images

Glasgow Celtic hefur fengið Georgios Samaras framherja Mancester City á láni út tímbilið og þá hefur skoska félagið gengið frá kaupum á japanska miðjumanninum Koki Mizuno en hann kemur frá JEF United.
Hinn 22 ára gamli Samaras hefur lítið fengið að spila með Manchester City á leiktíðinni og nokkur félög hafa verið orðuð við hann.

Nú mun hann hins vegar fara til Celtic á láni með möguleika á sölu í sumar. Samaras vonast til að fá að spila hjá Celtic og komast í gríska landsliðshópinn fyrir EM í sumar.

Mizuno sem er einnig 22 ára gamall hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Celtic.

Celtic hefur verið lengi á eftir honum en erfiðlega gekk að fá vegabréf fyrir Mizuno sem mun hitta fyrir landa sinn Shunsuke Nakamura hjá Celtic.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.