29.01.08 - 12:51
Magnús Már Einarsson
Mohamed Sissoko til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur keypt miðjumanninn Mohamed Sissoko frá Liverpool á 8,2 milljónir punda.
Sissoko hefur gert fimm ára samning við Juventus en hann er sem stendur að leika á Afríkumótinu með Malí.
Juventus hefur verið á eftir Sissoko undanfarnar vikur og núna hafa félagaskiptin gengið í gegn, tveimur dögum áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Þessi 23 ára gamli leikmaður kom til Liverpool frá Valencia á 5,6 milljónir punda árið 2005 en hann hefur lítið fengið að spila eftir að Javier Mascherano kom á láni til Liverpool í fyrra.
Líklegt er að Liverpool noti peninginn sem fæst fyrir Sissoko til að hjálpa til við að ganga frá kaupunum á Mascherano en lánssamningur hans rennur út næsta sumar.

Heimild: Sky