29.01.08 - 18:17
Magnús Már Einarsson
Gary McAllister tekinn við Leeds (Staðfest)

McAllister í leik með Leeds gegn Liverpool árið 1996.

Mynd: Getty Images

Leeds hefur ráðið Gary McAllister sem knattspyrnustjóra í kjölfar brotthvarfs Dennis Wise til Newcastle.
Wise yfirgaf Leeds í gær eftir 15 mánuði í starfi og Dave Bassett aðstoðarmaður hans hefur einnig yfirgefið félagið. Gwyn Williams tæknilegur ráðgjafi lðisins mun vera við stjórnvölinn gegn Southend í kvöld áður en McAllister tekur formlega við.
McAllister sem er 43 ára gamall þekkir vel til hjá Leeds því hann var á mála hjá félaginu frá 1990-1996.
Hann lék einnig með Leicester, Liverpool og Coventry á ferlinum en hann var stjóri síðastnefnda liðsins í eitt og hálft ár áður en hann hætti til að sinna Denise eiginkonu sinni sem lést í desember 2006 eftir baráttu við krabbamein.
McAllister lék á sínum tíma 57 landsleiki með Skota og hann var lengi vel í baráttunni um landsliðsþjálfarstöðuna þar en svo fór að hann tók ekki við þeirri stöðu.

Heimild: BBC