Fotbolti.net
29.03.06 - 08:05
Magnús Már Einarsson

Finnbogi Llorens til HK (Staðfest)

Finnbogi Llorens skrifar undir samninginn.

Finnbogi Llorens skrifar undir samninginn.

Canon

Mynd: hk.is

Varnarmaðurinn Finnbogi Llorens gerði í gær tveggja ára samning við HK en hann hætti hjá ÍA fyrr í vetur vegna náms síns í Tækniháskólanum í Reykjavík.
Finnbogi sem er 25 ára lék þrettán leiki með ÍA í Landsbankadeildinni í fyrra en þessi uppaldi Skagamaður hefur einnig leikið með Skallagrími og Bruna í þriðju deildinni hér á landi.

,,Mér líst mjög vel á mig hjá HK og hlakka til að spila með liðinu í sumar," sagði Finnbogi í samtali við vefsíðu HK en hann kemur til með að styrkja liðið vel í baráttunni í fyrstu deildinni og ekki síst eftir að annar varnarmaður, Árni Thor Guðmundsson fór til ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.