29.03.16 - 20:38
Magnús Már Einarsson

Heimir Hallgríms: Erum í vafa um einhverjar stöður
Auglýsing

Heimir á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Liðið var að spila vel í seinni hálfleik og það var kraftur í öllu sem við höfum verið að gera. Það hefur aðeins vantað þennan kraft í vináttuleiki hjá okkur,\" sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, við Fótbolta.net eftir 3-2 sigurinn á Grikkjum í kvöld.
Gengi Íslands hefur ekki verið gott í vináttuleikjum en af hverju hefur þennan kraft vantað þar?
„Kannski er það að hluta til okkur að kenna. Við erum með rútíneraðan undirbúning og kannski þurfum við að sparka betur í rassinn á þeim fyrir þessa vináttuleiki. Það er bara þannig að það er oft afslappaðara andrúmsloft í þessum vináttuleikjum.\"

Íslenska liðið var 2-1 undir í hálfleik en þá komu Hannes Þór Halldórsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir Bjarnason og Theodór Elmar Bjarnason allir inn á.
„Við vorum búnir að ákveða þrjár skiptingar. Við ákváðum síðan að taka Hannes í leiðinni í hálfleik,\" sagði Heimir.
Hannes var að leika sinn fyrsta leik síðan í október en af hverju vildu þjálfararnir ekki henda honum inn í byrjunarliðið? „Það voru margar ástæður fyrir því að við vildum láta Ögmund spila þetta. Fyrst að staðan var svona þá ákváðum við að skipta í hálfleik.\"
Hjörtur og Sverrir seigir
Hjörtur Hermannsson og Sverrir Ingi Ingason spiluðu í hjarta varnarinnar en þeir eiga fáa landsleiki.
„Þeir voru nokkuð seigir. Þeir hafa ekki spilað neitt saman og aþð er svolítið hættulegt að setja miðverði í landsleik sem hafa aldrei spilað saman. Mér fannst þeir leysa þetta nokkuð vel. Í marki tvö voru smá mistök en annars voru ekki mörg mistök hjá strákunum.\"
Arnór Ingvi Traustason skoraði í öðrum leiknum í röð eftir hornspyrnu en hann skoraði af nánast sama stað í vítateignum og gegn Dönum. „Hann virðist alltaf skora. Hann á þetta svæði á fjær í hornunum og hann kann að nýta þetta.\"
Vafa um einhverjar stöður
9. maí næstkomandi verður hópurinn fyrir EM tilkynntur en hversu nálægt eru Lars og Heimir því að vera klárir með hópinn?
„Við vildum skoða ákveðna leikmenn í þessu verkefni. Við erum í vafa um einhverjar stöður og það verður þannig áfram. Það er langur tími til 9. maí þegar við veljum lokahópinn og það er meira segja hægt að breyta honum eftir það. Það getur margt gerst á þeim tíma. Við erum með þónokkrar stöður sem við erum ekki ákveðnir hvernig við ætlum að velja í.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinn.