Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. mars 2021 20:34
Victor Pálsson
Lyon vill fá að fresta leik við PSG - COVID smit hjá félaginu
Sara leikur með Lyon.
Sara leikur með Lyon.
Mynd: Getty Images
Kvennalið Lyon í Frakklandi hefur beðið UEFA um að fresta leik liðsins við Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Frá þessu er greint í kvöld en fjórir aðilar hjá Lyon greindust nýlega með COVID-19. Liðið vann Dijon 3-0 í frönsku deildinni um helgina.

Samkvæmt leikjadagskránni á Lyon að spila við PSG á miðvikudag en liðið vill fá að fresta viðureigninni.

Lyon vann fyrri leikinn með einu marki gegn engu en Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með liðinu.

PSG þurfti fyrr á tímabilinu að gefa leik gegn Sparta Prag í 16-liða úrslitum keppninnar og tapaði þar með 3-0 en það kom ekki að sök eftir að hafa unnið fyrri leikinn 5-0.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner