Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 29. mars 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hélt kynjaveislu út á miðjum velli strax eftir leik
Mynd: EPA

Matt Turner markvörður bandaríska landsliðsins og Arsenal var í markinu þegar Bandaríkin unnu El Salvador í Þjóðadeildinni á mánudagskvöldið.


Turner á von á barni með konu sinni en hann komst að kyni barnsins eftir leikinn gegn El Salvador.

Hann fékk leyfi frá bandaríska sambandinu að halda kynjaveislu (e. Gender reveal) út á miðjum velli strax eftir leik. Hann sparkaði í bolta sem var fullur af bleiku dufti sem staðfesti það að hann ætti von á stelpu.

Fyrir eiga þau hjónin 9 mánaða gamlan son.


Athugasemdir
banner
banner