Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 13:11
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Rúmena fluttur á spítala - Missir af kveðjuleiknum
Mircea Lucescu
Mircea Lucescu
Mynd: EPA
Mircea Lucescu, þjálfari rúmenska karlalandsliðsins, var fluttur á spítala í morgun eftir að hafa fallið í yfirlið á æfingu liðsins en þetta kemur fram í yfirlýsingu fótboltasambandsins í dag.

Lucescu er ein stærsta goðsögn Rúmena, bæði sem leikmaður og þjálfari.

Árið 2024 tók hann aftur við landsliði Rúmena, fjórum áratugum eftir að hafa síðast stýrt liðinu. Þar á milli þjálfaði hann lið á borð við Brescia, Inter, Galatasaray, Shakhtar, Zenit og tyrkneska landsliðið.

Rúmenskir miðlar hafa greint frá því að Lucescu hafi fallið í yfirlið á æfingu landsliðsins í morgun og í kjölfarið fluttur á spítala, en ástand hans er sagt stöðugt.

Fótboltasambandið þar í landi hefur staðfest að Lucescu muni ekki ferðast með liðinu í vináttulandsleikinn gegn Slóvakíu sem átti að vera hans síðasti með landsliðið en samningur hans rennur út í sumar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Lucescu glímir við heilsuvandamál en árið 2009, er hann þjálfari Shakhtar í Úkraínu, var hann fluttur með hraði á spítala eftir að hafa fengið hjartaáfall. Hann var sendur í ítarlegar rannsóknir, en fékk síðan grænt ljós á að snúa aftur á hliðarlínuna.
Slapp
Athugasemdir
banner