29.04.05 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Íslandsmethafinn Hallur í Neista (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Hallur Kristján Ásgeirsson hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla heimafélag Neista á Djúpavogi og leika með liðinu í 3.deildinni. Hallur sem er 27 ára gamall á Íslandsmetið í félagaskiptum og eru þetta félagaskipti númer 19 hjá honum.
Hallur lék með Víkingi Ólafsvík á síðustu leiktíð en hann hefur verið meiddur í baki og þau meiðsli voru að plaga hann í fyrrasumar. Hallur var nálægt því að komast í atvinnumennsku fyrir um einu og hálfu ári síðan þegar að gríska liðið Larissa vildi semja við hann en ekkert varð af því.
Það kæmi ekki á óvart þú Hallur muni skipta um lið í sumar og fara jafnvel í efri deildirnar en það verður tíminn að leiða í ljós.
Sjá einnig:
Hin Hliðin á Halli
Íslendingur með tilboð frá Grikklandi í höndunum
Hallur ekki til Grikklands, kannski í Fjölni