29.04.08 - 15:33
Hörður Snævar Jónsson
Barry Smith í Val (Staðfest) - Líklega ekki klár í byrjun móts

Barry Smith mun spila með Val í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Barry Smith mun spila með Val í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Barry Smith hefur skrifað undir nýjan samning við Val en hann hefur leikið með liðinu síðustu tvö tímabil. Smith er kominn með leikheimild með Val að nýju eftir að hafa leikið í Skotlandi í vetur.
,,Ég er mjög ánægður með þetta," sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Vals þegar Fótbolti.net heyrði í honum hljóðið í dag.
,,Eins og er þá fór hann í aðgerð og það þurfti að skoða það hvernig staðan var á honum. Svo var hann að spila úti og svo þurftum við að taka mið af því hvernig hópurinn okkar var að þróast."
Barry mun koma til landsins og fara í endurhæfingu. ,,Hann er að jafna sig eftir aðgerðina, hann kemur til okkar og fer í endurhæfingu."
,,Ég á svona síður von á því að hann verði tilbúinn fyrir mót en hann fer að mæta," sagði Willum við Fótbolta.net
Smith sem hefur leikið með Greenock Morton í skosku 1. deildinni í vetur en er nú á leið til Íslands.
Barry Smith hefur leikið með Val undanfarin tvö ár eða síðan hann kom til félagsins frá Dundee í Skotlandi vorið 2006 eftir 11 ára veru hjá skoska félaginu. Áður en hann hætti hjá Dundee hafði hann stýrt liðinu tímabundið út tímabilið eftir að þjálfarinn var rekinn. Hann hefur átt fast sæti í byrjunarliðinu hjá Val þar sem hann lék í miðri vörninni.
Hann átti í viðræðum við FH í febrúar um að ganga til liðs við þá en bikarmeistararnir slitu samningaviðræðum og ákváðu að semja við Halldór Kristinn Halldórsson leikmann Leiknis í hans stað.