Fotbolti.net
29.04.17 - 21:17
Arnar Daði Arnarsson

Myndband: Íslendingar stjórnuðu víkingaklappi eftir sigur Hönefoss

Auglýsing
Myndband: Íslendingar stjórnuðu víkingaklappi eftir sigur Hönefoss
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var heldur betur stemning í stúkunni hjá stuðningsfólki Hönefoss í norsku 3. deildinni eftir fyrsta sigur liðsins á tímabilinu.

Eftir 4-1 sigur liðsins gegn Vindbjart á heimavelli var víkingaklappið tekið en tveir Íslendingar leika í liði Höneföss. Þeir Ásgeir Þór Ingólfsson og Marko Valdimar Stefánsson sem báðir gengu til liðsins frá Grindavík í vetur.
Þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu en liðið er með fjögur stig að loknum þremur leikjum.

Tveir Íslendingar voru á leiknum og þegar tveir Íslendingar koma saman erlendis þá er ekki að spyrja að því, að sjálfsögðu þarf víkingaklappið að vera tekið.

Í spilaranum hér að ofan má sjá myndbrot af víkingaklappinu eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.