Fotbolti.net
29.05.07 - 18:14
Magnús Már Einarsson

Rivaldo til AEK Aþenu (Staðfest)

Rivaldo í leik með Olympiakos.

Rivaldo í leik með Olympiakos.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Rivaldo hefur gert tveggja ára samning við gríska liðið AEK Aþenu en hann yfirga annað grískt lið, Olympiakos fyrr í mánuðinum eftir að samningaviðræður sigldu í strand.
Rivaldo sem er 35 ára gæti fengið allt að tvær milljónir evra fyrir þennan samning við AEK AÞenu.

,,Ég hef yfirgefið eitt stórlið til að fara í annað stórlið. Sú staðreynd að AEK er í Aþenu spilaði þátt í ákvörðun minni því að fjölskylda mín er mjög ánægð hér," sagði Rivaldo við heimasíðu AEK.

Liðið mun á næsta tímabili reyna að vinna sinn fyrsta deildarmeistaratitil í Grikklandi frá árinu 1994 en markmið númer eitt verður þó að ná Meistaradeildarsæti.

,,Það verður ekki auðvelt en ég get ekki sagt að það stressi mig. Við munum gera okkar besta. Það eina sem ég get sagt við stuðningsmennina er að þeir munu sjá Rivaldo sem er hungraður í að sigra og verða meistari," bætti Rivaldo við.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.