Arnar Gunnlaugs: Á auðvitað ekkert að gera það
Auglýsing

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslands- og bikarmeistarar Víkings tóku á móti gulum og glöðum norðan mönnum í dag þegar KA leit við á heimavöll hamingjunnar í Víkinni.
„Hún er bara svona eins og sigurtilfinning á að vera, mikil gleði og hamingja en þetta var mjög skrítinn leikur. Mér fannst bæði lið dreinuð af þreytu eftir langt leikjaprógram í maí og apríl og við erum búnir að spila fleiri leiki en flest lið í deildinni og eftir að við skorum þá fannst mér við einhvernveginn springa á því og förum að droppa neðar og neðar. KA með frábært lið, gerðu vel og fengu jöfnunarmarkið en við fengum auka kraft til að knýja fram sigur," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, eftir leik.
Það kom upp sérkennilegt atvik í leiknum þar sem Víkingar reyndu að gera tvöfalda skiptingu en í sömu andrá meiðist Karl Friðleifur Gunnarsson. Arnar ætlar að breyta fyrirhugaðri skiptingu en fær ekki að gera það. Í hornspyrnu í kjölfarið skora svo KA-menn jöfnunarmarkið. Arnar fékk rauða spjaldið.
„Það var bara illa framkvæmd skipting hjá Ella vini mínum, því miður. Við vorum tilbúnir með tvo menn og Kalli var meiddur og var að ströggla og við fengum bara að skipta einum. Halli var tilbúinn að koma inn á og einhverra hluta vegna þá leyfði dómarinn bara að halda áfram og svo fór að kvisast út eins og við værum búnir með slottin okkar. Þá varð Kalli að spila lengur og hann var bara meiddur, og markið kemur hans megin. Auðvitað missi ég bara stjórn á skapi mínu og á auðvitað ekkert að gera það og mér þykir það mjög leiðinlegt."