Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bayern tók Barcelona ekki alvarlega
Anthony Gordon.
Anthony Gordon.
Mynd: EPA
Anthony Gordon er kominn til Barcelona og forseti félagsins, Joan Laporta, átti stóran þátt í því að klára félagaskiptin.

Gordon hefur lokið læknisskoðun hjá Barcelona og var hann kynntur til leiks hjá félaginu fyrr í dag en hann er staddur í borginni ásamt fjölskyldu sinni og umboðsmönnum sínum.

Barcelona náði samkomulagi við Newcastle um kaupverð upp á um 70 milljónir punda og félagið vann Bayern Munchen í baráttunni um enska sóknarmanninn.

Þýski miðillinn Bild segir að Laporta hafi sjálfur hringt í Gordon til að hjálpa til við að klára málið og fullvissað leikmanninn um að skráning hans í hópinn yrði ekki vandamál þrátt fyrir áframhaldandi fjárhagsörðugleika félagsins.

Bayern er ekki sagt hafa tekið Barcelona alvarlega í viðræðunum og taldi þýska félagið að nafn Gordon hefði jafnvel verið notað til að setja pressu á Manchester United í að lækka verðmiðann á Marcus Rashford.

Þegar Bayern áttaði sig á stöðunni var samkomulag Barcelona við Gordon hins vegar þegar komið of langt á veg.

Barcelona fær að dreifa greiðslunum yfir fimm ár vegna fjárhagsstöðu félagsins. Newcastle mun einnig fá hlutfall af framtíðarsölu leikmannsins, á meðan Everton græðir sömuleiðis á félagaskiptunum vegna klásúlu sem sett var inn þegar Gordon var seldur til Newcastle árið 2023.

Koma Gordons til Katalóníu gæti jafnframt sett spurningarmerki við framtíð Marcus Rashford hjá Barcelona, en áfram eru viðræður í gangi milli spænska félagsins og Manchester United. Rashford var á láni hjá Barcelona á tímabilinu sem var að klárast.
Slapp
banner