Fotbolti.net
29.06.07 - 08:48
Hafliði Breiðfjörð

Darren Bent til Tottenham (Staðfest)

Darren Bent í leik með Charlton

Darren Bent í leik með Charlton

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa gengið frá kaupum á enska framherjanum Darren Bent frá Charlton en kaupverðið er met fyrir félagið, 16,5 milljónir punda. Bent komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í gær og skrifaði svo undir sex ára samning.
,,Tottenham eru með marga unga enska leikenn og það er ungur hópur, þetta er hópur sem er á uppleið og það er áttin sem ég vildi fara í," sagði Bent eftir að hann skrifaði undir samninginn. ,,Þetta er spennandi tími fyfir mig og Spurs og vonandi mun ég sýna hvað ég get."

,,Það hjálpar mikið að ég þeki nokkra drengi úr enska landsliðinu og ég er viss um að þeir hjálpi mér til við að aðlagast. Þeir virðast verða betri og betri með hverri leiktíðinni og ég vil vera hluti af því."

Áður voru dýrustu kaup Tottenham 11 milljón punda kaup á Sergei Rebrov frá Dynamo Kiev sumarið 2000. Ipswich eiga rétt á 20% af hagnaðinum sem Charlton fær af leikmanninnum vegna klásúlu í samningi sem félögin gerðu sín á milli er hann fór þar á milli. Þeir fá því 2,58 milljónir punda.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.