29.06.07 - 12:48
Andri Fannar Stefánsson
Örlygur Þór Helgason í Hamrana (Staðfest)

Örlygur í leik með KA.

Mynd: Fótbolti.net - Dagsljós

Örlygur í leik með KA.

Mynd: Fótbolti.net - Dagsljós
Varnarmaðurinn Örlygur Þór Helgason hefur gengið til liðs við Hamrana í 3. deildinni og er hann þar með fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við liðið á tveimur dögum.
Örlygur hefur leikið í Skotlandi og einnig með Þór og Leiftri en nú síðast var hann á mála hjá KA. Hann kom til þeirra snemma á árinu 2003 en hann tók sér frí frá fótbolta síðasta sumar vegna þrálátra hnémeiðsla.
Hann á fjölmarga leiki að baki í efstu deild, bæði fyrir KA og Þór en samanlagt eru þeir leikir 39 talsins, þá á hann marga leiki í næstefstu deild einnig.
Í gær gengu Hamrarnir einnig frá félagaskiptum við þrjá leikmenn sem hafa allir leikið með KA, Steingrím Örn Eiðsson, Hjörvar Maronsson og Pál Árnason.
Hamrarnir leika í kvöld gegn Dalvík/Reyni á Dalvíkurvelli kl. 20:00 en Hamrarnir eru í fjórða sæti D-riðils þriðju deildar og Dalvík sæti fyrir ofan með betri markatölu og því ljóst að um hörkuleik er að ræða.
Sjá einnig:
Hjörvar, Steingrímur og Páll í Hamrana (Staðfest)