Fotbolti.net
29.06.07 - 19:20
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Oliver Kapo til Birmingham (Staðfest)

Kapo í leik með Auxerre á sínum tíma

Kapo í leik með Auxerre á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Oliver Kapo en hann kemur frá ítalska félaginu Juventus fyrir þrjár milljónir punda.
Þessi 27 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning á St. Andrews með möguleika á tveimur til viðbótar.

Kapo byrjaði ferilinn hjá franska félaginu Auxerre en gekk til liðs við Juve árið 2004. Hann fór bæði til Monaco og Levante á láni eftir að honum gekk illa að festa sig í sessi á Ítalíu.

Kapo er fjórðu kaup Birmingham í sumar en áður höfðu þeir fengið miðjumanninn Fabrice Muamba, varnarmanninn Stuart Parnaby og sóknarmanninn Garry O’Connor.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.