Fotbolti.net
29.06.19 - 18:22
Kristófer Jónsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ejub: Við erum alltaf að leita af leikmönnum

Auglýsing
Ejub var svekktur með úrslitin í dag

Ejub var svekktur með úrslitin í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó., var svekktur með að fá ekki meira en eitt stig eftir leik sinna manna gegn Magna í Inkasso deildinni í dag. Leiknum lauk með markalausu jafntefli.

<i>„Það var sárt að skora ekki. Við spiluðum virkilega vel miðað við aðstæður og héldum boltanum vel. Við sköpuðum okkur fullt af færum og það er óskiljanlegt að við náum ekki að skora."</i> sagði Ejub eftir leik.
Víkingur var heilt yfir sterkari aðilinn í leiknum og sóttu stíft sér í lagi undir lok leiksins. Þeir vildu fá vítaspyrnu þegar að 90 mínútur voru komnar á klukkuna en fengu ekkert fyrir sinn snúð.

„Mér fannst Gummi (Guðmundur Ársæll, dómari) dæma leikinn mjög vel. En mér fannst við eiga að fá víti í restina. Það var pjúra hendi og ég held að það séu flestir sammála um það." sagði Ejub um atvikið.

Félagsskiptaglugginn opnar núna eftir helgi og segir Ejub það vel koma til greina að styrkja leikmannahópinn sinn.

„Við erum alltaf að leita af leikmönnum og einhverjir fara og einhverjir koma. Við erum í þeirri stöðu að við getum alltaf leitað af góðum leikmönnum þannig að það kemur bara í ljós." sagði Ejub aðspurður um málið.

Nánar er rætt við Ejub í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.