Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 29. júní 2022 21:15
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Aftur vann Njarðvík 6-0
Úlfur Ágúst Björnsson skoraði eitt af sex mörkum Njarðvíkur
Úlfur Ágúst Björnsson skoraði eitt af sex mörkum Njarðvíkur
Mynd: Njarðvík
Njarðvík 6 - 0 KF
1-0 Kenneth Hogg ('26 )
2-0 Oumar Diouck ('38 )
3-0 Hreggviður Hermannsson ('45 )
4-0 Bergþór Ingi Smárason ('51 )
5-0 Ari Már Andrésson ('63 )
6-0 Úlfur Ágúst Björnsson ('65 )

Það er kalt á toppnum í 2. deild karla en Njarðvík situr þar með 25 stig eftir níu leiki en liðið gjörsigraði KF í kvöld, 6-0, á Rafholtsvellinum í Njarðvík.

Kenneth Hogg kom Njarðvík yfir á 26. mínútu áður en Oumar DIouck bætti við öðru tólf mínútum síðar. Hreggviður Hermannsson gerði svo þriðja markið áður en hálfleikurinn var úti.

Liðið bætti svo við þremur mörkum í þeim síðari. Bergþór Ingi Smárason skoraði á 51. mínútu og þá gerði Ari Már Andrésson fimmta markið á 63. mínútu áður en Úlfur Ágúst Björnsson, leikmaður síðustu umferðar, rak síðasta naglann í kistu KF.

Þetta er annar 6-0 sigur liðsins í röð en liðið vann toppbaráttulið Ægis í síðustu umferð með sömu markatölu.

NJarðvík hefur unnið átta leiki og gert eitt jafntefli í fyrstu níu umferðunum en KF situr í 7. sætinu með 10 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner