Íslenska landsliðið mun á eftir mæta Póllandi í eina undirbúningsleik liðsins fyrir EM í Englandi.
Leikurinn hefst 13:30 og er hægt að fylgjast með honum í beinni textalýsingu hér á síðunni.
Leikurinn hefst 13:30 og er hægt að fylgjast með honum í beinni textalýsingu hér á síðunni.
Lestu um leikinn: Pólland 1 - 3 Ísland
Það verður fámennt en góðmennt á þessum leik. Ekki er búist við mörgum Íslendingum í stúkunni.
En hér á vellinum eru aðdáendur íslensku leikmannana. Hérna er til að mynda mikill stuðningsmaður Glódísar Perlu Viggósdóttur, varnarmanns íslenska landsliðsins.
Drengurinn ungi er með borða sem á stendur: „Draumur minn er að fá treyju þína."
Meðfylgjandi eru myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók fyrir leik.
Athugasemdir