Óskar: Ég hef fengið margar ótrúlega vondar hugmyndir en enga svona lélega

„Ég skil ekki hvar Steve Clarke var staddur í veröldinni og á hverju hann var þegar hann hugsaði þetta.“

Mynd: EPA

Segist hafa fengið margar vondar hugmyndir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

5% líkur á að Skotland komist áfram.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR og sérfræðingur í HM kvöldi á Rúv, er ekki beint hrifinn af Steve Clarke, landsliðsþjálfara Skotlands.
Skotar töpuðu gegn Brasilíu, 3-0, á miðvikudag og voru fyrstu tvö mörkin af ódýrari gerðinni þar sem varnarmenn Skotlands misstu boltann á hættulegum stöðum eftir að hafa reynt uppspil og Brassar refsuðu.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Brassar skoruðu þrjú og geggjuð mörk Haítí og Bosníu
„Ég skil ekki hvar Steve Clarke var staddur í veröldinni og á hverju hann var þegar hann hugsaði; Ég er með McKenna og Hendry sem hafsenta ég held að við spilum frá marki og sjáum hvort við getum ekki aðeins lokkað Vinicius Jr. og Rayan að okkur. Svo bara spilum við í gegnum þá.
Þið hafið séð McKenna með Nottingham Forest eða FCK, gæinn er ekkert eðlilega lélegur með boltann og hægur á fótunum,“ sagði Óskar í HM kvöldi á Rúv í gær. Þá segir hann ekki hafa fengið jafn slaka hugmynd og þessa sem Steve Clarke fékk.
„Ég held að ég hafi ekki fengið svona lélega hugmynd. Ég hef fengið margar ótrúlega vondar hugmyndir en enga svona lélega,“ sagði Óskar og uppskar hlátur frá kollegum sínum í settinu.
Arnar Gunnlaugsson reynir þá eitthvað að koma Steve Clarke til varnar með því að segja þetta hafa verið einstaklingsmistök. „Þetta er bara líkindareikningur, McKenna fær boltann inn í teig, hann er pressaður. Það eru svona 80% líkur að hann missi hann,“ svaraði Óskar.
5% líkur fyrir Skota að komast áfram
Fyrir úrslit gærdagsins voru 42% líkur að Skotar myndu komast áfram sem eitt af átta bestu liðum í þriðja sæti. Eftir leikina í gær hafa líkurnar farið niður í 5.26%, samkvæmt ofurtölvu Opta.