„Þetta er búið að vera sturlað"

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Alexander Rafn Pálmason lék sinn síðasta leik á Meistarvöllum með KR í bili þegar hann kom inn á gegn ÍA á mánudagskvöldið. Hann er á leið til Nordsjælland í Danmörku þar sem hann mun æfa með U19 liðinu. Stefna Alexanders er svo að koma sér upp í aðalliðið.
Hann ræddi við Fótbolta.net í vikunni og var spurður út í KR.
Hann ræddi við Fótbolta.net í vikunni og var spurður út í KR.

TENGT EFNI
Á leið til Danmerkur - „Ætla reyna komast sem fyrst upp í aðalliðið"
„Þetta er búið að vera sturlað, mjög gaman að vera í alveg frekar fínu hlutverki. Mér fannst hlutverkið mitt mjög gott á þessu tímabili og fannst þetta ógeðslega gaman. Tilfinningin að spila með KR er sturluð, stúkan er alltaf full og svo er maður kominn með lag um sig. Þetta er geðveikt, ég gæti ekki verið glaðari."
Í laginu syngja KR-ingar um hinn 16 ára gamla Alexander og að hann sé 3. flokki. Svona er lagið: „Zamina mina ey ey, Lexi Pálma ey ey, 16 ára who gives a ...., hann er í 3. flokk," syngur Miðjan.
En hvernig var að koma inn í leikinn á mánudag vitandi að það væri síðasti leikurinn?
„Þetta var svolítið skrítin tilfinning, ég var bæði glaður og leiður að vera fara."
„KR á allan séns á því að vinna þetta bara (Bestu deildina). Við erum bara í keppni við sjálfa okkur, en ég held að mínir menn geti gert allt sem þeir vilja," segir Alexander.