Ég er kominn heim - Horfðu á myndina um draum allra drauma

Hvar varst þú 27. júní 2016?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvar varst þú 27. júní 2016?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árið 2016 er eitt það eftirminnilegasta í fótboltasögu Íslands. Íslenska landsliðið fór alla leið í 8-liða úrslit á EM eftir frækna frammistöðu og 2-1 sigur á Englandi í 16-liða úrslitum.
TV1 Magazine er með stóra og mikla umfjöllun um sigurinn á Englendingum á EM 2016. Á morgun, 27. júní, eru tíu ár frá því að Ísland vann sinn fræknasta sigur í fótboltasögunni. Á heimasíðu TV1 má finna sögulegt efni.
Myndin 'Ég er kominn heim' um EM ævintýri Íslands, með viðtali við Gumma Ben, er mynd mánaðarins á TV1 og öllum aðgengileg. Stórbrotin upprifjun á þessum draumi allra drauma.

Smelltu hér til að horfa á myndina og rifja upp ævintýrið eða horfðu í spilaranum hér að ofan.
Þá tók Þorsteinn J. Vilhjálmsson nýtt viðtal við Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfara sem kemur inn á síðu TV1 Magazine. Arnar var sérfræðingur í umfjöllun um mótið og á Englandsleiknum. Hann talar um leikinn og þýðingu hans, og fær spurningina: Hvernig getur Ísland eignast nýtt gullaldarlið?