Fotbolti.net
26.06.26 - 13:00
Kári Snorrason

Öll lið nema eitt skorað á HM

Panama mætir Englandi annað kvöld.

Panama mætir Englandi annað kvöld.

Canon

Mynd: EPA

Af þeim 48 liðum sem etja kappi á heimsmeistaramótinu hafa 47 þeirra tekist að skora að minnsta kosti eitt fótboltamark.

Eina liðið sem hefur mistekist að skora er Panama. Liðið hefur mætt Gana og Króatíu, báðir leikirnir hafa endað með 1-0 tapi Panama.
Metin halda áfram að falla á HM
TENGT EFNI

Metin halda áfram að falla á HM

Panama mætir Englandi í lokaumferð riðlakeppninnar og því verðugt verkefni framundan hjá liðinu.

Markametið á heimsmeistaramótinu féll í nótt er 173. mark mótsins var skorað.

Aldrei áður hafa fleiri mörk verið skoruð á einu heimsmeistaramóti frá því keppnin var fyrst haldin árið 1930 en fjölgun liða á núverandi móti spilar þar stóra rullu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.