Fotbolti.net
26.06.26 - 16:28
Elvar Geir Magnússon

James ekki með gegn Panama - Konsa líklega bakvörður

Reece James.

Reece James.

Canon

Mynd: EPA

Reece James æfði ekki með enska landsliðinu í dag en þessi varnarmaður Chelsea er að glíma við meiðsli aftan í læri. Hann hefur misst mikið út undanfarin ár vegna meiðsla.

James verður að öllum líkindum ekki með Englandi gegn Panama í lokaumferð L-riðils annað kvöld. Með sigri í leiknum munu ljónin tryggja sér toppsæti riðilsins.

Enskir fjölmiðlamenn telja að óvissa ríki um James og mögulegt sé að hann missi af fyrsta leiknum í útsláttarkeppninni. Guardian segir líklegt að Ezri Konsa færist í hægri bakvörðinn.

Líklegt er talið að Declan Rice verði hvíldur gegn Panama þrátt fyrir að hafa æft í dag en hann hefur verið að spila í gegnum smávægileg meiðsli
Kallar eftir fimm breytingum á byrjunarliði Englands
TENGT EFNI

Kallar eftir fimm breytingum á byrjunarliði Englands

Bukayo Saka hefur einnig verið að spila í gegnum smávægileg meiðsli á mótinu og því byrjað á bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.