Fotbolti.net
26.06.26 - 14:06
Elvar Geir Magnússon

Egyptar og Íranir losna ekki við regnbogafánana

Regnbogafáni á fótboltavelli.

Regnbogafáni á fótboltavelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum komnir hingað til að spila fótbolta. Við viljum ekki tala um hluti sem eru bannaðir í okkar trú og eru ekki til staðar. Við viljum tala um fótbolta og fegurð leiksins," segir Amir Ghalenoei, landsliðsþjálfari Írans.

Egyptaland og Íran mætast í Seattle í nótt og hafa skipuleggjendur leiksins ákveðið að gera hann að sérstökum "Pride" leik þar sem "Pride" helgin er framundan í borginni. Þá verður jafnrétti og LGBTQ+ samfélaginu fagnað.

Ekki hefur verið hætt við þessar áætlanir þrátt fyrir mótmæli frá Egyptalandi og Íran. Þjálfarar beggja liða neituðu að ræða þetta mál á fréttamannafundi. Bæði í Egyptalandi og Íran er samkynhneigð bönnuð.
HM um helgina - Úrslitastund í riðlunum og 32-liða úrslitin fara af stað
TENGT EFNI

HM um helgina - Úrslitastund í riðlunum og 32-liða úrslitin fara af stað

Skipuleggjendur segjast hafa ákveðið að þetta yrði sérstakur "Pride" leikur áður en vitað var hvaða þjóðir myndu mætast. Það að þetta sé viðureignin breyti engu.

„Þetta snýst um Seattle, ekki Egyptaland eða Íran," segir Jess Fishlock, ein af skipuleggjendunum.

FIFA segir að regnbogafánar verði leyfðir á leikvangnum en tekur fram að það séu gestgjafarnir í Seattle sem standi fyrir þessari umgjörð en ekki FIFA.
Egypska landsliðið.

Egypska landsliðið.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.