Fotbolti.net
26.06.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Arsenal kannar möguleika á að fá miðjumenn Newcastle

Sandro Tonali í leik gegn Arsenal.

Sandro Tonali í leik gegn Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal er að skoða möguleika á styrkingu í sumarglugganum og hefur sent fyrirspurnir um tvo af miðjumönnum liðsins; Bruno Guimaraes og Sandro Tonali.

Arsenal vill fá inn miðjumann í hópinn í sumar og hefur kannað ýmsa möguleika. Alex Scott hjá Bournemouth og Ayyoub Bouaddi hjá Lille eru einnig á blaði.
Arsenal hefur rætt við umboðsmenn Guimaraes og Tonali en ekki enn sett sig í samband við Newcastle, samkvæmt frétt BBC. Tonali er 26 ára og Guimaraes 29 ára.

Newcastle hefur þegar hafnað um 80 milljóna punda tilboði frá Tottenham í Tonali og vill ekki missa fyrirliða sinn, Guimaraes sem er með brasilíska landsliðinu á HM og mun mæta Japan í 32-liða úrslitum.

BBC hefur áður sagt að Newcastle muni hlusta ef tilboð nær 100 milljónum punda berst í Tonali en Manchester City er sagst fylgjast með gangi mála.
Bruno Guimaraes.

Bruno Guimaraes.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.