Fotbolti.net
26.06.26 - 15:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Como að kaupa Paz á háa upphæð - Real getur keypt hann aftur

Como að kaupa Paz á háa upphæð - Real getur keypt hann aftur
Canon

Mynd: EPA

Nico Paz „flakkar á milli félaga" þessa dagana en Real Madrid ákvað að virkja endurkaupsákvæði í samningi hans á dögunum. Argentínumaðurinn var hjá Como á liðnu tímabili og var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í Meistaradeildinni með frábæru tímabili á Ítalíu undir stjórn Cesc Fabregas.

Como ætlar, samkvæmt Sky á Ítalíu, að kaupa hann aftur af Real Madrid á 60 milljónir evra, og mun hann því tæknilega séð ekkert færa sig um set í sumar.
Paz er með argentínska landsliðinu á HM og þessi 21 árs sóknarsinnaði miðjumaður verður áfram á Ítalíu á næsta tímabili.

Real Madrid greiddi 10 milljónir evra fyrir Paz til þess svo að selja hann aftur á 60 milljónir evra. Ef Como hefði ekki keypt hann til baka þá hefði Real reynt að selja hann annað á enn hærri upphæð.

Real selur hann aftur til Como þar sem sambandið milli félaganna er gott og Como er tilbúið að bjóða Real Madrid aftur upp á endurkaupsrétt. Sú upphæð mun nú hljóða upp á 80 milljónir evra.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.