Fotbolti.net
25.06.26 - 22:04
Kári Snorrason

Segir áhyggjuefni hversu langt liðið er á eftir Víkingi

Auglýsing
Ólafur Ingi Skúlason.

Ólafur Ingi Skúlason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér fannst við stóran hluta í fyrri hálfleik mjög góðir en klúðruðum oft góðum stöðum. Við byrjum seinni hálfleik nokkuð vel, en það vantaði oft það síðasta. Ógna marki þeirra meira og klára sóknirnar. Það er eitthvað sem þeir gera vel, þeir voru mjög klínískir í dag,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 4-1 tap gegn Víkingi í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Víkingur R.
Breiðablik er átján stigum á eftir Víkingi í deildinni. Ólafur var spurður út í ef hann horfir í úrslit dagsins og forskot Víkings í deildinni hvort það væri áhyggjuefni hve langt Blikar væru á eftir Víkingi.

„Já, það er það. Þeir eru búnir að vera mjög öflugir. Það eru svosem flest lið töluvert á eftir þeim. Það er að sjálfsögðu áhyggjuefni.“

Hvað þarf að gerast svo að þær áhyggjur minnki? „Við þurfum að byrja á því að vinna þá hérna á sunnudaginn. Það er bara næsti leikur. Undanúrslit í bikar, mjög mikilvægur leikur. Byrjum þar,“ sagði Ólafur jafnframt.
Helgi Guðjónsson skorar framhjá Antoni Ara.

Helgi Guðjónsson skorar framhjá Antoni Ara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.