Eiður Orri mun að öllum líkindum ekki spila gegn Víkingi

Eiður Orri

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Helgi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var Eiður Orri Ragnarsson (2004) kynntur sem nýr leikmaður Víkings, félagið kaupir hann frá Keflavík en hann klárar tímabilið þar á láni.
Nú eru því tveir leikmenn á láni frá Víkingi hjá Keflavík og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru ákvæði í báðum samningum sem verða til þess að þeir munu ekki spila gegn Víkingi á Víkingsvelli í næsta mánuði.
Hinn leikmaðurinn sem um ræðir er Davíð Helgi Aronsson (2007) sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Keflavík á tímabilinu. Bæði Davíð Helgi og Eiður Orri eru byrjunarliðsmenn hjá Keflavík.

TENGT EFNI
Víkingur kaupir Eið Orra (Staðfest) - Kemur eftir tímabilið
Ekki er hægt að banna leikmönnunum að spila en um einhvers konar heiðursmanna samkomulag er að ræða og yrði Keflavík að greiða Víkingi háa upphæð ef leikmennirnir kæmu við sögu í leiknum og myndi það setja strik í samband félaganna.
Leikur Víkings og Keflavíkur fer fram á Víkingsvelli sunnudaginn 26. júlí.
Leikur Víkings og Keflavíkur fer fram á Víkingsvelli sunnudaginn 26. júlí.

Davíð Helgi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð